Facebook
Twitter
LinkedIn
Pinterest
Email

Lífsbrunnur

Lífsbrunnur er iðjuþjálfamiðstöð sem var stofnuð árið 2020 og hefur að markmiði að bjóða iðjuþjálfaþjónustu til barna, unglinga, foreldra og skóla. Boðið er upp á mat á skynúrvinnslu, félagsfærninámskeið og þjálfun í athöfnum daglegs lífs, ásamt fleiru.

Hugmyndin að Lífsbrunni hefur verið lengi í huga mér. Mig hefur alltaf langað að sameina í eitt allt sem ég kann og hef réttindi til að gera. Frá 2004 hef ég verið með sjálfstæðan rekstur og námskeið fyrir lesblinda einstaklinga, auk þess sem ég er með réttindi til að nota Davis-aðferðina. Árið 2012 útskrifaðist ég sem iðjuþjálfi og árið 2015 fékk ég síðan réttindi til að vera með PEERS-félagsfærninámskeið.

Þegar COVID-19 skall á þá þurftum við hjá Lífsbrunni, eins og fleiri, að nota fjarkennslubúnað meira. Sú reynsla hefur kennt okkur margt þar sem við færðum m.a. PEERS-námskeiðin okkar yfir í fjarkennslu og fengum fleiri fyrirspurnir um fjarkennslu af ýmsu tagi. Öll þessi þjónusta gekk mjög vel í fjarfundabúnaði, sem varð til þess að mig langaði að geta hjálpað fleirum sem hvorki hafa tök á að fá þjónustu í sínum heimabæ né koma til Reykjavíkur.

Til þess að mega veita iðjuþjálfun í fjarheilbrigðisþjónustu þá varð ég að sækja um leyfi landlæknis sem og ég gerði vorið 2020 og er núna með staðfestingu frá Embætti landlæknis til að starfa sjálfstætt sem iðjuþjálfi, bæði á stofu og til að veita fjarheilbrigðisþjónustu.

Þá kom upp hugmyndin um að gefa fyrirtækinu nýtt nafn og sameina alla þessa þætti en með aðaláherslu á fjarkennslu. Ég mun þó að sjálfsögðu halda áfram að sinna öllum þessum þáttum líka á stofunni sem ég er með að Arnarbakka 2-4 í Reykjavík, og í nærumhverfi skjólstæðinga.

Þá langaði mig að stækka þetta enn frekar og hringdi í Rósu Gunnsteinsdóttur iðjuþjálfa og fjölskyldufræðing. Þar sem við erum gamlir vinnufélagar og höfum alltaf náð vel saman faglega var upplagt að bjóða henni með og var hún til í þetta með mér. Við erum tvær saman með heimasíðuna idjutjhalfun.is.

Rósa hefur verið með réttindi frá Embætti landlæknis til að vera með iðjuþjálfun á stofu frá 2017 en hún sinnir þeirri þjónustu á Domus Mentis geðheilsustöð og í nærumhverfi skjólstæðinga. Framtíðarsýn okkar er að veita iðjuþjálfun á stofu, fara á vettvang og í fjarþjónustu.

Þjónustan sem ég mun veita í fjarþjónustu er: Skynúrvinnslumat og ráðgjöf fyrir börn, unglinga, foreldra og skóla. Mat á færni til að takast á við athafnir daglegs lífs, dagleg rútína, áhugamál, andleg líðan og geðrænar áskoranir. Ráðgjöf varðandi það sem viðkomandi vill geta gert og þarf að geta gert. Námskeið fyrir lesblinda og PEERS-félagsfærninámskeið. Sama þjónusta verður í boði á stofu og á vettvangi hjá bæði Guðrúnu og Rósu.

Grein: Iðjuþjálfinn – fagblað iðjuþjálfa, tölublað 42. árgangur 2021